Á vorönn 2025 verður boðið upp á:
Menntastoðir er vinsæl námsbraut sem hefur veitt fjölda fólks ný tækifæri í námi og er góður undirbúningur fyrir áframhaldandi nám. Eftir útskrift úr Menntastoðum er hægt að sækja um í undirbúningsdeildum háskólanna; Bifröst, HR og Keili eða starfs-, iðn- og tækninám.
Menntastoðir eru kenndar samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og eru 60 einingar á 2.þrepi íslenska hæfnirammans um menntun. Hægt er að meta námið til framhaldsskólaeininga.
Boðið er upp á að taka staðnámið á einni eða tveimur önnum.
Staðnám er kennt í Mími, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík.
Kennt er frá 8:35-15:30 alla virka daga.
Menntastoðir eru kenndar samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og eru 60 einingar á 2.þrepi íslenska hæfnirammans.
Smellið á námsgreinar til að fá nánari upplýsingar.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja nám hjá Mími?
Hafðu samband við þitt stéttarfélag eða þinn ráðgjafa og kannaðu málið.
Inntökuskilyrði
að vera 18 ára eða eldri og hafa ekki lokið framhaldsskólaprófi
Námsmat
Unnið er samkvæmt hugmyndum um leiðsagnarmat. Námsárangur og námsframvinda nemenda er metin jafnt og þétt á fjölbreyttan hátt, til dæmis með símati, verkefnavinnu og virkri þátttöku nemenda.
Lokapróf (í stærðfræði, íslensku og ensku) eru tekin í Mími eða á öðrum stað sem samið er um við verkefnastjóra.
80% mætingarskylda er í Menntastoðum staðnámi.
Kennslustaður
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Styrkir/niðurgreiðslur
Fræðslusjóðir stéttarfélaganna niðurgreiða námið allt að 90%. Nauðsynlegt er að greiða fyrir námið fyrst og framvísa svo frumriti af reikningi til viðkomandi stéttarfélags til að fá endurgreiðsluna.
Stundatafla/kennslufyrirkomulag
Kennt er frá 8:35-15:30 alla virka daga.
Verð
212.000 kr. Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði.
Verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar
Spurt og svarað
Hvenær hefst námið?
Nám í Menntastoðum fer af stað á hverri önn svo lengi sem skráning er nægjanleg. Haustönn byrjar í ágúst og vorönn í janúar.
Ef ég klára Menntastoðir, kemst ég þá í háskóla?
Þau sem útskrifast úr Menntastoðum geta sótt um nám í undirbúningsdeildum háskólanna Bifröst, HR og Keili
Hvað margar einingar eru í Menntastoðum?
Menntastoðir eru 60 einingar á 2.þrepi íslenska hæfnirammans um menntun
Menntastoðir eru kenndar samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sem er vottuð af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Málefni framhaldsfræðslu (fullorðinsfræðslu) falla undir Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi nám í Menntastoðum til framhaldsskólaeininga.