Menntastoðir er vinsæl námsbraut sem hefur veitt fjölda fólks ný tækifæri í námi og er góður undirbúningur fyrir áframhaldandi nám. Eftir útskrift úr Menntastoðum er hægt að sækja um í undirbúningsdeildum háskólanna; Bifröst, HR og Keili eða starfs-, iðn- og tækninám.
Menntastoðir eru kenndar samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og eru 60 einingar á 2.þrepi íslenska hæfnirammans um menntun. Hægt er að meta námið til framhaldsskólaeininga.
Íslenskufærni þarf að vera að lágmarki B2 skv. Evrópska tungumálarammanum.
Boðið er upp á að taka Menntastoðir í stað- eða fjarnámi.
Nemendur ljúka námi á tveimur önnum. Námið er fimm lotur og eru kenndar tvær námsgreinar samhliða í hverri lotu. Að auki eru tvær námsgreinar sem hvor um sig eru kenndar á einni önn. Námstækni er kennd á fyrri önn og Yndislestur á þeirri seinni.
Lokapróf (í stærðfræði, íslensku og ensku) eru tekin í Mími eða á öðrum stað sem samið er um við verkefnastjóra.
Menntastoðir eru kenndar samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og eru 60 einingar á 2.þrepi íslenska hæfnirammans.
Smellið á námsgreinar til að fá nánari upplýsingar.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám? Hafðu samband við þitt stéttarfélag eða þinn ráðgjafa og kannaðu málið.
Inntökuskilyrði
að vera 20 ára eða eldri og hafa ekki lokið framhaldsskólaprófi
Námsmat
Unnið er samkvæmt hugmyndum um leiðsagnarmat þar sem námsmat er stöðugt í gangi. Námsárangur og námsframvinda nemenda er metin jafnt og þétt alla önnina með fjölbreyttum verkefnum og stuttum könnunum.
Kennslustaður
Fjarnám
Styrkir/niðurgreiðslur
Fræðslusjóðir stéttarfélaganna niðurgreiða námið allt að 90%. Nauðsynlegt er að greiða fyrir námið fyrst og framvísa svo frumriti af reikningi til viðkomandi stéttarfélags til að fá endurgreiðsluna.
Stundatafla/kennslufyrirkomulag
Áfangar hefjast á kynningarfundi á TEAMS með kennara. Aðra hverja viku eru svo stuðningstímar á TEAMS með kennara. Tímasetningar á þeim má sjá í kennsluáætlun áfangans á INNU.
Námið samanstendur af sex til sjö vikna lotum og eru kenndar tvær námsgreinar í hverri lotu ásamt námstækni. Nemendur ljúka námi á tveimur önnum. Próf í stærðfræði, íslensku og ensku eru tekin í Mími eða á öðrum stað sem samið er um við verkefnastjóra.
Ef nemandi er búsettur erlendis þarf hann að finna viðurkenndan prófstað.
Viðurkenndur prófstaður getur verið menntastofnun, sendiráð, ræðismannsskrifstofa eða annað. Nemandi finnur tengilið þar og setur verkefnastjóra í samband við þann tengilið. Verkefnastjóri þarf síðan að samþykkja prófstaðinn.
Nemendur greiða sjálfir fyrir próftöku ef að próf er tekið annarsstaðar en í Mími.
Öll próf fara fram á sama tíma og á Íslandi. Tímamismunur getur verið mikill.
Verð
226.500 kr. Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði.
Eðlileg námsframvinda eru 2 annir. Ef nemendur dreifa náminu á lengri tíma greiða þeir fyrir þá stöku áfanga sem að eftir eru auk skráningargjalds ef að hlé verður á námi.
Verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar
Spurt og svarað
Hvenær hefst námið?
Nám í Menntastoðum fer af stað á hverri önn svo lengi sem skráning sé nægjanleg. Á haustin byrja hópar í ágúst en á vorönn í janúar.
Hvenær útskrifast nemendur?
Formleg útskrift er tvisvar á ári, í desember og júní.
Ef ég klára Menntastoðir, kemst ég þá í háskóla?
Þeir sem útskrifast úr Menntastoðum geta sótt um nám í frumgreinadeildum háskólanna.
Hvað margar einingar eru í Menntastoðum?
Menntastoðir eru kenndar samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Mennta – og menningarmálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til framhaldsskólaeininga.

