Menntastoðir er vinsæl námsbraut sem hefur veitt fjölda fólks ný tækifæri í námi. Nemendur eru mjög vel undirbúnir fyrir áframhaldandi nám. Þeir sem ljúka námi í Menntastoðum með tilskildum árangri geta sótt um í undirbúningsdeildir háskólanna, Keili, HR og Bifröst. Hægt er að meta námið til framhaldsskólaeininga. Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði og kennt samkvæmt námskrá vottaðari af Menntamálastofnun.
Blandað. Nemendur mæta tvo virka eftirmiðdaga kl. 16:35 – 19:50 (mánudaga og miðvikudaga) í viku og tvo laugardaga í mánuði kl. 9 – 13:45. Fyrsti laugardagur 26.ágúst
Nemendur ljúka námi á tveimur önnum.
Kenndar eru tvær námsgreinar í einu, samhliða námstækni. Útskrift er maí 2024.
Smellið á námsgreinar til að fá nánari upplýsingar.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Inntökuskilyrði
a. að vera 18 ára eða eldri og hafa ekki lokið framhaldsskólaprófi
eða
b. að hafa undirritað námssamning hjá Vinnumálastofnun
Námsmat
Unnið er samkvæmt hugmyndum um leiðsagnarmat þar sem námsmat er stöðugt í gangi. Námsárangur og námsframvinda nemenda er metin jafnt og þétt alla önnina með fjölbreyttum verkefnum og stuttum könnunum.
Kennslustaður
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Styrkir/niðurgreiðslur
Fræðslusjóðir stéttarfélaganna niðurgreiða námið allt að 90%. Nauðsynlegt er að greiða fyrir námið fyrst og framvísa svo frumriti af reikningi til viðkomandi stéttarfélags til að fá endurgreiðsluna.
Stundatafla/kennslufyrirkomulag
Kennt er tvo virka eftirmiðdaga kl. 16:35 – 19:50 (mánudaga og miðvikudaga) í viku og tvo laugardaga í mánuði kl. 9 – 13:45. Fyrsti laugardagur 26.ágúst. Námið er tvær annir.
Verð
181.000 kr.* Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði.
*Birt með fyrirvara um breytingar.
Um greiðslu námskeiðsgjaldaSpurt og svarað
Hvenær hefst námið?
Nám í Menntastoðum fer af stað á hverri önn svo lengi sem skráning sé nægjanleg. Á haustin byrja hópar í ágúst en á vorönn í janúar.
Hvenær útskrifast nemendur?
Formleg útskrift er tvisvar á ári, í desember og júní.
Ef ég klára Menntastoðir, kemst ég þá í háskóla?
Þeir sem útskrifast úr Menntastoðum geta sótt um nám í frumgreinadeildir háskólanna.
Hvað margar einingar eru í Menntastoðum?
Menntastoðir eru kenndar samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Mennta – og menningarmálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til framhaldsskólaeininga.
Skráning á póstlista
Upplýsingar um ný námskeið, tilboð og síðustu sætin á námskeið sem eru að hefjast.