Hjá Mími er nú hægt að taka staka áfanga. Áfangarnir sem um ræðir eru Íslenskugrunnur, Enskugrunnur 25 eða 35, Dönskugrunnur Stærðfræðigrunnur og svo Tölvugrunnur. Áfangarnir eru góðir til undirbúnings fyrir frekara nám eða sem leið til þess að ljúka óloknum einingum. Þá henta áfangarnir vel þeim sem vilja rifja upp námsefni eða þurfa að uppfylla forkröfur í annað nám eins og til dæmis iðnnám. Ef fólk telur sig þurfa leiðbeiningar eða aðstoð með hvaða leiðir er hægt að nýta sér er hægt að hafa samband, að kostnaðarlausu, við náms- og starfsráðgjafa hjá Mími. Nánari upplýsingar um námið má finna á hlekkunum hér að neðan.

Athygli er vakin á því að uppbygging námsins er miðuð við að fólk geti stundað vinnu samhliða. 

Nánari upplýsingar má finna hér:

Íslenskugrunnur

Enska 25  Enska 35

Dönskugrunnur

Stærðfræðigrunnur

Tölvugrunnur

Náms- og starfsráðgjöf

Náms-og starfsráðgjafar aðstoða einstaklinga við ákvarðanatöku um nám eða starfsþróun. Þeir veita einnig þjónustu vegna raunfærnimats.

Viðtöl við markhóp framhaldsfræðslunnar eru einstaklingum að kostnaðarlausu. Ráðgjöf er fyrst og fremst ætluð einstaklingum með stutta formlega skólagöngu og er fjármögnuð af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.

Panta viðtal í náms- og starfsráðgjöf

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?