Um námið

Grunnur í ensku nýtist þeim nemendum sem eiga eftir að klára staka áfanga í ensku. Námið má meta til eininga. Megináhersla er lögð á ritun, hlustun, lestur, lesskilning ásamt þjálfun í munnlegri tjáningu. Námið er á hæfnistigi 2 á framhaldsskólastigi. Kennt er með aðferðum fullorðinsfræðslu sem hentar meðal annars nemendum sem hafa ekki verið í skóla í lengri tíma. Stuðst er við leiðsagnarmat og símat við mat á árangri.

Kennslufyrirkomulag

Kennt er miðvikudaga frá 16:45-20:00 og annan hvern laugardag frá 9:00-12:15 (fyrsti laugardagur 13.maí)