26. nóvember, 2024
Þessi flotti hópur fagnaði nýverið útskrift úr Íslensku 2 hjá Mími. Námskeiðið Íslenska 2 er framhald af Íslensku 1 en hentar einnig þeim sem hafa öðlast grunnfærni í íslensku á stigi A1.1. Á námskeiðinu er orðaforðinn aukinn og fléttað við samfélagslega þætti daglegs lífs á Íslandi. Nemendurnir hafa nú tækifæri á að fara á framhaldsnámskeiðið Íslenska 3 sem kennt verður á vorönn 2025 eða Talþjálfun, stig 2-3 sem er einnig 40 stundir.
Við óskum nemendunum okkar innilega til hamingju með útskriftina.