Þessi glæsilegi hópur lýkur von bráðar stigi 5 í íslensku sem öðru máli en á myndinni má sjá þau ásamt kennara sínum, Hólmfríði Gestsdóttur. Námskeiðið er kennt fjóra daga í viku, í alls 5 vikur. 

Íslenska 5 er á stigi B 1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Nemendur sem takast á við stigið hafa að baki fjögur 40 klst. íslenskunámskeið, eða 160 klst.nám. Þau sem hafa sambærilega færni í íslensku er velkomið að taka þátt á stigi 5, eftir stöðumat sem boðið er upp á; sjá https://www.mimir.is/is/nam/study-icelandic/almennt-stodumat-i-islensku

Á námskeiðinu eru tal og skilningur styrkt með fjölbreyttum kennsluaðferðum og nemendur vinna skrifleg verkefni til að auka færni sína í lestri og ritun. Aukið er við málfræðikunnáttu í samræmi við þarfir nemenda á þessu stigi. Kunnátta þátttakenda er metin í lok námskeiðsins og þeim veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi sínu.

Hér má sjá hvað býðst í Mími á stigi 5.

Ánægjulegt er að segja frá því að Íslenska 6 verður einnig í boði síðar á vorönninni: Sjá hér.