Á vorönn útskrifuðust tveir metnaðarfullir hópar úr Leikskólasmiðju og Umönnunarsmiðju. Nemendur í Leikskólasmiðju efldust í skapandi leik, samskiptum og íslensku og fengu dýrmæta reynslu í vettvangsnámi. Þau fóru í heimsóknir, meðal annars í Þjóðleikhúsið, þar sem þau fengu að kynnast leikhúsinu og kíktu inn á æfingu.

Nemendur í Umönnunarsmiðju dýpkuðu þekkingu sína á umönnunarstörfum, samskiptum og skapandi aðferðum. Þau fengu góða innsýn í starfið í vettvangsnámi og heimsóknum. Gaman er að segja frá því að nemendur fengu boð í Hörpu og flestir voru að koma þangað í fyrsta sinn.

Við óskum öllum útskriftarnemum innilega til hamingju og farsældar í lífi og starfi.