Á dögunum útskrifuðust tveir hópar úr tveimur smiðjum, Leikskólasmiðju og Umönnunarsmiðju.
Nemendur í Leikskólasmiðju hafa lagt hart að sér við nám sitt og hafa sýnt miklar framfarir í íslensku og lært að tjá sig í gegnum tónlist og leiklist, Þeir fóru í fjögurra daga vettvangsnám þar sem þeir öðluðust dýrmæta reynslu og þekkingu sem mun nýtast þeim vel í framtíðinni.
Nemendur í Umönnunarsmiðju fengu góðan undirbúning fyrir störf í umönnun og tóku meðal annars þátt í tónlistarsmiðju, hreyfismiðju og myndlistasmiðju þar sem þeir fræddust um hvernig hægt væri að nota skapandi greinar í umönnunarstörfum. Nemendur fóru í fjögurra daga vettvangsnám, fóru í nokkrar skemmtilegar og fræðandi heimsóknir ásamt því að bæta við íslenskukunnáttu sína sem mun hjálpa þeim að eiga samskipti við þá sem þeir munu annast í framtíðinni.
Við óskum öllum útskriftarnemum innilega til hamingju með áfangann og óskum þeim alls hins besta í framtíðinni!
Útskriftarhópur úr leikskólasmiðju
Útskriftarhópur úr umönnunarsmiðju