Dagur íslenskrar tungu verður haldinn 16. nóvember nk. í þrítugasta sinn. Markmiðið með deginum er að minna okkur öll á mikilvægi íslenskrar tungu, gleðjast og fagna sögu íslenskunnar, samtíð og framtíð. Dagurinn er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar (1807-1845), skálds og náttúrufræðings, sem var mikill nýyrðasmiður á íslensku. Næmi hans og virðing fyrir tungumálinu gerði honum fært að tjá hugsanir sínar og annarra á þann hátt að ný orð og nýjar samsetningar yfir hluti eða hugmyndir, sem áður voru ekki til á íslensku, virðast gamalkunn og hafa verið hluti af málinu alla tíð. Nýrði Jónasar Hallgrímssonar eru fjölmörg og sem dæmi má nefna orð eins og: næturkyrrð, páfagaukur, tígulkóngur, þjóðareign, æðakerfi, líffæri, aðdráttarafl, dalalíf, geislabaugur og lambasteik!
Við hjá Mími fögnum degi íslenskrar tungu með því að velja okkar uppáhaldsorð. Veldu þitt orð – hvort sem það er fallegt, fyndið, gamalt eða nýtt og segðu okkur af hverju það skiptir þig máli. Deildu myndbandi með orðinu þínu á Instagram eða Facebook með myllumerkinu #mittorð #daguríslenskrartungu, taggaðu Mími og taktu þátt í að sýna fjölbreytileika og fegurð íslenskunnar. Með þátttöku gefur þú Mími leyfi til að deila efninu áfram á samfélagsmiðlum og að hafa samband við þig vegna mögulegs viðtals.
Allir sem taka þátt eiga möguleika á að vinna námskeið hjá Mími sér að kostnaðarlausu! Þú getur valið orðið þitt og deilt því með okkur til 16. nóvember. Sjá nánar hér.


