Þessi flotti hópur fagnaði nýverið útskrift úr íslensku 3 helgarnámi hjá Mími. Þau hafa verið saman sem hópur síðan þau byrjuðu að læra á stigi 1 og hafa ávallt verið með sama kennarann.
Námskeiðið íslenska 3 er framhald af islensku 2 og hentar einnig þeim sem hafa öðlast grunnfærni í íslensku á stigi A1.2.
Í íslensku 3 er orðaforðinn aukinn og verður flóknari. Áhersla er lögð á að nemendur geti skilið samfellt mál og tjáð sig í lengra máli. Efnið tengist jafnt daglegu lífi og samfélagslegum þáttum. Nemendurnir hafa nú tækifæri á að fara í framhaldsnámskeiðið Íslenska 4 á haustmisseri, fjar- eða staðnám, eða Íslenska talþjálfun 3-4 sem einnig er 40 stunda námskeið.
Við óskum nemendunum okkar innilega til hamingju með útskriftina.