Um námskeiðið

Líf og heilsa – lífsstílsþjálfun er fyrir alla sem vilja bæta eigin heilsu og fá þekkingu á helstu áhrifaþáttum góðrar heilsu. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að hjálpa einstaklingum að taka ábyrgð á eigin heilsu með því að tileinka sér hollt mataræði, stunda fjölbreytta hreyfingu og fleira.

Faglegur leiðbeinandi veitir reglulega eftirfylgni og stuðning allt námskeiðið, bæði hópnum í heild og hverjum einstaklingi fyrir sig.

Námskeiðið er fyrst og fremst hugsað sem forvörn og hvatning til bættrar heilsu en getur einnig nýst fólki með heilsufarsvanda á borð við háan blóðþrýsting, hátt kolesteról eða sykursýki af gerð tvö. 

Þátttakendum er boðið upp á heilsufarsmælingu í upphafi og við lok námskeiðsins til að meta og kanna heilsufarslega stöðu sína.

Uppbygging náms

Lengd námsins eru 60 klst með leiðbeinanda, en gert er ráð fyrir vinnuframlagi nemenda án leiðbeinanda yfir námstímann í lífstílsþjálfun.

Kennt er 1 x í viku eftir hádegi.

Athugið að til að ljúka námsbrautinni þarf að uppfylla 80% mætingu.

Námsgreinar

  • Andlegar áskoranir
  • Eftirfylgni
  • Heilsulæsi, skráningar og mat
  • Fjölbreytt hreyfing
  • Samvinna, markmiðasetning og hvatning
  • Hollt mataræði, skammtastærðir og næring

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Kannaðu málið!

Inntökuskilyrði

a. að vera 18 ára eða eldri og hafa ekki lokið framhaldsskólaprófi

eða

b. að hafa undirritað námssamning hjá Vinnumálastofnun

Námsmat

Námsmat byggir á mætingu og virkni í tímum. Athugið að til að ljúka námsbrautinni þarf að uppfylla 80% mætingu. 

Kennslustaður

Höfðabakki 9

Styrkir/niðurgreiðslur

Fræðslusjóðir stéttarfélaganna niðurgreiða námskeiðið. Nauðsynlegt er að greiða fyrir námskeiðið og framvísa svo frumriti af reikningi til viðkomandi stéttarfélags til að fá endurgreiðsluna. Atvinnuleitendur geta sótt um allt að 75% niðurgreiðslu til Vinnumálastofnunar. Námsstyrkir | Vinnumálastofnun (vinnumalastofnun.is)

Stundatafla/kennslufyrirkomulag

Kennt er alla þriðjudaga frá 12 til 15.

Verð

Fullt verð 24.000 kr. Vinnumálastofnun greiðir allt að 75% af námsgjaldi. Námsstyrkir | Vinnumálastofnun (vinnumalastofnun.is)