Um námskeiðið

Ferðaþjónusta 1 er ætlað þeim sem starfa eða hafa hug á að starfa í ferðaþjónustu og vilja efla færni sína í að takast á við fjölbreytt úrlausnarefni í því starfi. Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði og kennt samkvæmt námskrá vottaðari af Menntamálastofnun. 

Uppbygging náms

Kennt er mánudaga- föstudaga kl. 8:40-12:00. Náminu er skipt í þrjá sérhæfða hluta: ferðaþjónusta, þjónusta og samskipti og vinnustaðurinn og staðarþekking. Engin lokapróf en áhersla lögð á mætingu og virkni í tímum. Mætingarskylda er á námskeiðið. 

Námsgreinar

  • Sjálftraust / Self-confidence
  • Frumkvæði / Initiative
  • Fjölmenningarfærni / Multiculturalism
  • Starfshæfni / Work ability
  • Árangursrík samskipti / Effective communication
  • Að vinna undir álagi / Working under pressure
  • Viðskiptavinurinn í brennidepli / Customer in focus

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Kannaðu málið!

 Inntökuskilyrði

a. að vera 18 ára eða eldri og hafa ekki lokið framhaldsskólaprófi

eða

b. að hafa undirritað námssamning hjá Vinnumálastofnun

Námsmat

Námsmat byggir á mætingu og virkni í tímum. Mætingarskylda er á námskeiðið. Ekkert lokapróf. 

Kennslustaður

Höfðabakki 9, 110 Reykjavík

Styrkir/niðurgreiðslur

Fræðslusjóðir stéttarfélaganna niðurgreiða námskeiðið. Nauðsynlegt er að greiða fyrir námskeiðið og framvísa svo frumriti af reikningi til viðkomandi stéttarfélags til að fá endurgreiðsluna. Atvinnuleitendur geta sótt um allt að 75% niðurgreiðslu til Vinnumálastofnunar. Námsstyrkir | Vinnumálastofnun (vinnumalastofnun.is)

Stundatafla/kennslufyrirkomulag

Kennt er mánudaga til föstudaga klukkan 8:40-12:00

Verð

Fullt verð 20.000 kr. Vinnumálastofnun greiðir allt að 75% af námsgjaldi. Námsstyrkir | Vinnumálastofnun (vinnumalastofnun.is)

 Verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar

Flokkar: Námsbrautir