Um námskeiðið

Markmið með námskeiðinu er að nemendur:

  • auki vitund um þarfir og aðstæður einstaklinga með fötlun og geðraskanir.
  • fræðist um mismunandi sérkenni og algengi fötlunar- og geðsjúkdóma.
  • auki færni sína í samskiptum við einstaklinga með fötlun og geðraskanir og aðstandendur þeirra.
  • fræðist um hugmyndafræði nútímans.
  • kynni sér hlutverk og þjónustu hagsmunafélaga.

Farið verður í vettvangsferðir og verkefni unnin að þeim loknum.

Uppbygging náms

Kennsla fer fram í staðnámi, miðvikudaga kl.13:00 -16:00

Námskeiðið er 38 klukkustundir

Kennslugögn

Námsefni frá leiðbeinanda, myndbönd, annað efni verður kynnt í kennslustundum.

Flokkar: Aðrar brautir