Námskeið fyrir dyraverði 2018

Námskeið fyrir dyraverði er unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Námskeiðið er ætlað starfandi dyravörðum og/eða þeim sem hyggjast starfa við dyravörslu. Þá hentar námskeiðið einnig starfsfólki hótela og veitingahúsa sem t.d. vinna næturvaktir. Námskeiðið er starfstengt og er ætlað að efla þátttakendur í starfi.  

Að námskeiði loknu fá þátttakendur dyravarðaskírteini sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gefur út en skírteinið gildir í þrjú ár. 

Námskeið fyrir dyraverði hefst mánudaginn 30. apríl næstkomandi og lýkur miðvikudaginn 16. maí. Kennsla fer fram á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 16:30 til 19:25 í Mími að Höfðabakka 9, 110 Rvk.

Inntökuskilyrði

Þátttakendur skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Vera að minnsta kosti 20 ára
  • Hafa ekki gerst sekir um ofbeldis- eða fíkiniefnabrot á síðastliðnum fimm árum. Leggja skal fram sakarvottorð því til staðfestu. Erlendir ríkisborgarar skulu leggja fram sakarvottorð frá sínu heimalandi. Sakarvottorðum er skilað til lögreglu þegar sótt er um leyfi til að starfa sem dyravörður.

Dyravarðaskírteini 

Sótt um dyravarðaskírteini á lögreglustöðinni við Hverfisgötu.Hægt er að sækja um dyravarðaskírteini til þriggja ára áður en námskeið hefst og verður það þá afhent við námskeiðslok.  

Til að ljúka námskeiðinu þarf að ná minnst 80% mætingu. 

Námskeiðsgjald 

Námskeiðsgjald er 45.000 krónur. Þátttakendur og/eða vinnuveitendur geta sótt um styrk til starfsmenntasjóðs stéttarfélags viðkomandi.  

Mælt er með því að umsækjendur hafi sótt um staðfestingu á umbeðnum skilyrðum frá lögreglunni áður en þeir skrá sig á námskeiðið.

 

Nánari upplýsingar

Inga Jóna Þórisdóttir, s. 580-1800 eða ingajona@mimir.is

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?