Vanessa og Zita, verkefnastjórar hjá Mími, fóru nýlega í heimsókn til Háskóla Íslands þar sem þær héldu kynningu á Mími fyrir nemendur sem stunda BA-nám í íslensku sem öðru máli.

Þær kynntu starfsemi Mímis fyrir nemendum og lögðu áherslu á að kynna þá fjölbreytta flóru íslenskunámskeiða sem er í boði hjá Mími. Ólíkar tegundir námskeiða, mörg mismunandi stig auk fjar- og staðkennslu. Í framhaldinu áttu þær gott og líflegt spjall við nemendurna um kennslu erlendra tungumála.

Nemendurnir voru einstaklega áhugasamir um það hvernig maður verður farsæll kennari og hvaða kröfur eru gerðar til þess að kenna í tungumálaskóla. Þau voru óhrædd við að spyrja skemmtilegra spurninga og vonandi fengu þau svörin sem þau voru að leita að.

Í framhaldinu munu nemendurnir heimsækja Mími og sitja kennslustundir sem áhorfendur til að öðlast meiri þekkingu á kennsluaðferðum í tungumálanámi.

Þetta var ánægjuleg heimsókn og telja Vanessa og Zita sig heppnar að fá að taka þátt í að leiðbeina nemendunum á þeirra vegferð að verða farsælir kennarar.

Við hlökkum til að taka á móti þeim hjá Mími.