Þessir tveir glæsilegu hópar útskrifuðust miðvikudaginn 9. apríl sl. úr fagnámskeiðum 1 og 2 fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu.
Námskeiðin eru ætluð þeim sem aðstoða, annast um eða hlúa að öldruðum, fötluðum og sjúkum á einkaheimilum eða stofnunum, til að mynda, við innkaup, þrif og persónulega umhirðu.
Á fagnámskeiðunum er lögð áhersla á námsþætti sem nýtast starfsfólki bæði í starfi og einkalífi en námskeiðin eru jafnframt undanfari náms í Félagsliðagátt hjá Mími.
Fagnámskeiðin eru haldin í samstarfi Mímis og Eflingar. Þau eru samanlagt 190 klukkustundir.
Við óskum útskriftarnemendunum hjartanlega til hamingju með áfangann.