Glæsilegir hópar útskrifuðust miðvikudaginn 13. desember 2023 frá Mími úr fagnámskeiðum 1 og 2 fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Fagnámskeiðin eru haldin í samstarfi Mímis-símenntunar og Eflingar og eru ætluð þeim sem aðstoða, annast um eða hlynna að sjúkum, fötluðum og öldruðum á einkaheimilum eða stofnunum. Einnig þeim sem aðstoða skjólstæðinga við innkaup, þrif og persónulega umhirðu.

Á fagnámskeiðunum er lögð áhersla á námsþætti sem nýtast starfsmanninum í starfi og einkalífi en námskeiðin eru jafnframt undanfari náms í Félagsliðagátt hjá Mími. Fagnámskeið 1og 2 eru samanlagt 190 klukkustundir, 95 klst. hvert námskeið.

Við óskum útskriftarnemendum hjartanlega til hamingju með áfangann.

Útskriftarhópurinn úr Fagnámskeiði 2

Útskriftarhópurinn úr Fagnámskeiði 1