Glæsilegur hópur útskrifaðist miðvikudaginn 11. júní úr Fagnámskeiði 1 fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu.
Námskeiðið er ætlað þeim sem aðstoða, annast um eða hlúa að öldruðum, fötluðum og sjúkum á einkaheimilum eða stofnunum.

Á fagnámskeiðunum er lögð áhersla á námsþætti sem nýtast starfsfólki bæði í starfi og einkalífi.
Fagnámskeið 1 og 2 eru haldin í samstarfi Mímis og Eflingar stéttarfélags. Þau eru samanlagt 190 klst.

Við óskum útskriftarnemendunum hjartanlega til hamingju með áfangann.