Fimmtudaginn 1.júní, útskrifuðust 22 nemendur úr Fagnámskeiði 1 fyrir starfsfólk leikskóla. Þetta var virkilega skemmtilegur og hress hópur og gaman að hafa þau í húsi. Þau fara nú aftur til vinnu á sínum leikskólum með nýja vitneskju og hugmyndir í farteskinu. Á námskeiðinu var m.a. lög mikil áhersla á tölvuleikni og notkun hennar í starfi með börnum.

Einhver þeirra munu svo koma aftur til okkar í Mími á Fagnámskeið 2 fyrir starfsfólk leikskóla. Þar verður m.a. lögð áhersla og myndlist og leiklist.

Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með útskriftina