Fundurinn var hluti af sameiginlegu samstarfi innan Erasmus+ á Íslandi og dró saman fagfólk úr ólíkum geirum til að ræða þróun og tækifæri á sviði fullorðinsfræðslu. Að fundinum stóðu EPALE, evrópsk vefgátt í fullorðinsfræðslu, Euroguidance, sem styður störf náms- og starfsráðgjafa, og European Agenda for Adult Learning (EAAL), sem fjallar um stefnumótun stjórnvalda á sviði fullorðinsfræðslu.

Markmið fundarins var að varpa ljósi á mikilvægi óformlegs náms og skoða hvernig skapandi námsrými geta stutt við þátttöku, virkni og nám fullorðinna. Kynnt voru fjölbreytt dæmi úr starfi bókasafna og fræðsluaðila þar sem áhersla er lögð á að skapa opið, aðgengilegt og hvetjandi námsumhverfi sem eflir samskipti, lausnaleit og samfélagslega þátttöku.

Eitt af því sem vakti sérstaka athygli var hvernig bókasöfn gegna sífellt stærra hlutverki sem lifandi námsrými fyrir fólk á öllum aldri. Á fundinum var rætt um ólíkar áherslur bókasafna, virkni þeirra í samfélaginu og mikilvægi samstarfs þeirra við fjölbreytta fræðsluaðila og símenntunarmiðstöðvar.

Þátttaka starfsmanna Mímis á fundinum opnaði enn frekar augu þeirra fyrir mikilvægi fjölbreyttra námsleiða og skapaði aukna vitund um þörfina fyrir aðgengilegt og sveigjanlegt námsumhverfi fyrir fullorðna námsmenn.

Sjá hér myndir frá fundinum: 

Óformleg fræðsla