Í ljósi núverandi takmarkana vegna Covid 19 útbreiðslu þá gilda eftirfarandi sóttvarnir í húsnæði Mímis: 

  • 1 m fjarlægðarregla gildir alls staðar í húsnæði Mímis.
  • Grímuskylda er í öllum sameiginlegum rýmum þar sem ekki er hægt að við hana 1 m fjarlægðarreglu. 
  • Grímuskylda er inni í kennslustofum á meðan ekki er setið við borð.
  • Viðhalda skal stífum persónubundnum sóttvörnum á meðan dvalið er í húsnæði Mímis.
  • Ef þú ert með kvefeinkenni eða Covid-lík einkenni þá skaltu ekki mæta í húsnæði Mímis.
  • Sótthreinsivökvi og sótthreinsiklútar eru aðgengilegir í húsnæði Mímis.

Núverandi reglugerð heilbrigðisráðherra fellur úr gildi þann 27. ágúst og verður staðan í Mími endurmetin samhliða nýjum sóttvarnarreglum stjórnvalda.

Mikilvægt er því að fylgjast vel með tilkynningum/upplýsingum sem birtast á upplýsingasíðu Mímis um  Covid–19 (https://www.mimir.is/is/covid-19 ) og sendar eru út í gegnum Innu.