Hjá Mími hefur verið þróað nýtt kennsluefni, VINNUtal, sem styður við hagnýta íslenskukennslu á vinnumarkaði. Efnið byggist á ítarlegri þarfagreiningu á vinnustöðum og samráði við atvinnulífið, fræðsluaðila og sérfræðinga í tungumálakennslu.

VINNUtal er rafrænt og sveigjanlegt kennsluefni sem býður upp á nýja möguleika í íslenskukennslu fyrir vinnumarkaðinn með því að auðvelda fræðsluaðilum að aðlaga kennslu innan vinnustaða að ólíku starfsumhverfi og getustigi nemenda. Með sérstakri áherslu á talþjálfun og orðaforða tengdan vinnustöðum styður efnið við raunveruleg samskipti á íslensku og aukna þátttöku innflytjenda á íslenskum vinnumarkaði.

Markmiðið er að efla sjálfstraust nemenda, styðja sjálfstætt nám og auka tækifæri þeirra til virkrar þátttöku í samfélaginu.

Kennsluefnið verður aðgengilegt öllum á vefsíðu Mímis.