Gleðilegt nýtt ár!

Um áramót er tími til að horfa til framtíðar og nýrra tækifæra. Fjölmarga dreymir um að hefja nám, jafnvel eftir talsvert hlé frá námi. Aðrir vilja styrkja hæfni sína til að fá óskastarfið. Hjá Mími er fjölbreytt flóra náms og námskeiða sem henta stórum hópi fólks hvar sem það er statt á námsvegferð sinni.

Meðal spennandi nýjunga hjá Mími eru starfstengd íslenskunámskeið fyrir fólk, með annað móðurmál en íslensku, sem hefur áhuga á að starfa á leikskólum og í frístund eða við umönnun. Þessar námsleiðir eru tilvaldar fyrir þau sem vilja auka færni sína í íslensku samhliða fagtengdu námi. Einnig er í boði tungumálanám eins og japanska, ítalska og spænska.

Skráningar standa nú yfir í Menntastoðir sem eru ein vinsælasta námsleið Mímis og hefur veitt fjölda fólks ný tækifæri í námi. Námið er fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri. Þeir sem ljúka námi í Menntastoðum með tilskyldum árangri geta sótt um í undirbúningsdeildir háskólanna, Keili, HR og Bifröst. Námið er í boði bæði í staðnámi og fjarnámi. Stuðningur, eftirfylgni og sigrar einkenna Menntastoðir hjá Mími og þar eru öll velkomin.

Sífellt fleiri sækja námskeiðið Íslenska og atvinnulíf sem er fyrir byrjendur í íslensku þar sem fléttað er saman íslenskunámi og fræðslu um íslenskt atvinnulíf á móðurmáli nemenda.

Náms- og starfsráðgjafar hjá Mími eru boðnir og búnir til að hjálpa fólki að velja sér námsleið við hæfi en úrvalið má líka skoða á vef Mímis, www.mimir.is Auðvelt er að panta samtal við náms- og starfsráðgjafa á vefnum og geta viðtöl farið fram í gegnum síma, fjarfundabúnað eða hér í Mími.

Við vonum að nýtt ár verði ykkur gjöfult og gæfuríkt.

Fyrir hönd starfsfólks Mímis,
Sólveig Hildur Björnsdóttir, framkvæmdastjóri