Fullt var út úr dyrum og góður andi ríkti á vinnustofunni „Eflum íslenskunotkun á vinnustaðnum“ sem Hæfnisetur ferðaþjónustunnar stóð fyrir nýverið. Þar kom saman fjölbreyttur hópur stjórnenda, starfsfólks og hagaðila úr ferðaþjónustu til að ræða leiðir til að efla íslensku í daglegu starfi á fjölmenningarlegum vinnustöðum.
Fulltrúar frá Mími-símenntun, þær María Stefanía, fagstjóri íslensku og erlends samstarfs, og Sandra Björk, verkefnastjóri, tóku þátt í vinnustofunni og kynntu íslenskustarf Mímis. Þar var meðal annars fjallað um samstarfsverkefni við Landspítala, þar sem unnið er markvisst að íslenskuþjálfun starfsfólks, sem og nýtt þróunarverkefni í Mýrdalshreppi sem styrkt er af Þróunarsjóði innflytjendamála.
Kynning Mímis vakti góðar umræður og sköpuðust gagnleg tækifæri til samtals við þátttakendur. Sérstaklega var áhugavert að fá innsýn í stöðu íslenskunnar innan ferðaþjónustunnar og ræða hvernig best sé að styðja við inngildingu starfsfólks í greininni í gegnum markvissa málnotkun og aðgengilegt nám.
Á vinnustofunni var einnig farið yfir hagnýtar leiðir til að efla íslenskunotkun á vinnustöðum, þar á meðal innleiðingu málstefnu, stafrænar lausnir, sjálfsnám og aðgengilegt stuðningsefni fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu.
Ljóst er að mikill vilji er til staðar innan greinarinnar til að styrkja stöðu íslenskunnar bæði í innra starfi og í samskiptum við gesti. Slík vinna er langtímaverkefni sem krefst samvinnu og markvissra aðgerða, en jafnframt tækifæri til að efla bæði fagmennsku og upplifun í íslenskri ferðaþjónustu.



