Mímir hefur leitt þróunarverkefnið KeNNA, sem snýr að þróun nýs stafræns kennsluefnis. Það er ætlað kennurum í framhaldsfræðslu með sérstakri áherslu á fjarkennslu og stafræn vinnubrögð. Verkefnið hlaut styrk frá Fræðslusjóði framhaldsfræðslu og byggist á þarfagreiningu kennara og nemenda í fjarkennslu í íslensku sem öðru máli.

Afurð verkefnisins eru 20 stutt og hnitmiðuð kennslumyndbönd þar sem hvert og eitt snýst um eina af tuttugu meginreglunum um árangursríka fjarkennslu. Myndböndin eru á bilinu 9–20 sekúndur að lengd og fjalla meðal annars um tæknilega þætti, kennsluaðferðir, hvatningu og samskipti við nemendur.

Öll myndböndin eru nú aðgengileg á YouTube og verða einnig sett inn á vefsíðu Mímis þar sem þau nýtast kennurum sem stutt og hagnýt leiðarljós í skipulagi og framkvæmd fjarkennslu. Markmiðið er að efnið nýtist víða og styðji við áframhaldandi faglega þróun í fjarkennslu og bættan aðgang að íslenskunámi fyrir fjölbreyttan hóp námsmanna, óháð búsetu.