VIRK - Starfsendurhæfingarsjóður efndi til svokallaðrar úrræðamessu föstudaginn 9. maí síðastliðinn. Þar kynntu þjónustuaðilar VIRK starfsemi sína, en Mímir er á meðal þeirra fyrirtækja sem þjónusta skjólstæðinga VIRK.
Markmiðið með þátttöku okkar hjá Mími var að sýna fram á þau fjölbreyttu tækifæri sem bjóðast einstaklingum sem vilja endurmeta stöðu sína á vinnumarkaði, bæta við sig færni eða stefna að nýjum markmiðum í lífi og starfi. Meðal þess sem var lögð áhersla á að kynna voru atvinnutengd úrræði og úrræði fyrir einstaklinga með annað móðurmál en íslensku.
Það voru þær Kristín Erla, Þórunn og María Stefanía fagstjórar hjá Mími sem sáu um að kynna úrræðin sem að Mímir hefur upp á að bjóða.