VIRK - Starfsendurhæfingarsjóður efndi til svokallaðrar úrræðamessu. Þar kynna þjónustuaðilar VIRK starfsemi sína, en Mímir er á meðal þeirra fyrirtækja sem þjónusta þá sem leita til VIRK. Hjá Mími eru fjölmörg tækifæri fyrir þá sem að vilja endurmeta stöðu sína og stefna að nýjum markmiðum. Meðal þess sem Mímir lagði áherslu á að kynna var Náms- og starfsráðgjöf ásamt Áhugasviðskönnun sem nefnist Bendill. Þá voru Menntastoðir og lífstílsnámskeiðið Líf og heilsa til kynningar. Það voru þær María og Karen, náms- og starfsráðgjafar sem sáu um að kynna þau úrræði sem að Mímir hefur upp á að bjóða.