Menntadagur atvinnulífsins 2026 var haldinn á vegum Samtaka atvinnulífsins þann 11. febrúar sl.. Fagstjórar hjá Mími, þær Þórunn Grétarsdóttir, Kristín Erla Þráinsdóttir og María Stefanía Stefánsdóttir, tóku þátt í deginum fyrir hönd Mímis, en á honum var fjallað um stöðu og framtíð menntakerfisins í tengslum við þarfir atvinnulífsins.
Yfirskrift dagsins var Framtíðin kallar. Er menntakerfið að hlusta? og snérist dagskráin um hvernig menntun og starfsþróun geti betur mætt raunverulegum aðstæðum á vinnumarkaði. Fjallað var um mikilvægi samráðs, aukna áherslu á starfsnám og hvernig efla megi fólk til að afla sér þekkingar í starfi og á vinnustöðum.
Fyrir Mími er þessi umræða sérstaklega mikilvæg. Starfsemi Mímis byggir á nánu samstarfi við atvinnulífið og þeirri sýn að fræðsla sé ekki kostnaður heldur fjárfesting og tækifæri, bæði fyrir einstaklinga og vinnustaði. Með markvissri fræðslu sem endurspeglar raunverulegar þarfir vinnumarkaðarins má efla starfshæfni, styrkja fagmennsku og stuðla að aukinni verðmætasköpun innan fyrirtækja.
Skilaboðin frá deginum voru skýr: Menntakerfið og atvinnulífið þurfa að vinna saman. Við hjá Mími tökum undir það - fræðsla er tækifæri fyrir okkur öll.


