Þessi flotti hópur útskrifaðist á dögunum úr fyrstu Ferðaþjónustusmiðju Mímis. Námið var fjölbreytt og tóku nemendur meðal annars þátt í leiklistar- og listasmiðjum, fóru í heimsóknir á söfn og æfðu sig að sjálfsögðu líka í íslensku í leiðinni.
Hluti námskeiðsins var fjögurra daga vettvangsnám á starfstaði sem tengjast ferðaþjónustu. Að vettvangsnáminu loknu fengu sumir nemendanna atvinnutilboð sem er flottur árangur og ber vitni um hæfni þeirra og vinnusemi. Starfsfólk Mímis þakkar þeim vinnustöðum sem tóku á móti nemendum í vettvangsnám kærlega fyrir samstarfið.

Við óskum nemendunum innilega til hamingju með árangurinn og þökkum þeim fyrir að hafa valið að taka þátt í Ferðaþjónustusmiðju Mímis. Við óskum þeim velfarnaðar í lífi og starfi.