Mímir er á meðal 3% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla skilyrði Viðskiptablaðsins og Keldunnar og telst því Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2018.
Til þess að komast á listann þurfa fyrirtæki að hafa skilað ársreikningi og uppfylla ströng skilyrði. Fyrirtækin þurfa að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárinu 2017. Tekjur þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna, eignir yfir 80 milljónum og eiginfjárhlutfallið þarf að hafa verið yfir 20%. Auk þessa er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Að þessu sinni komast ríflega 1.100 fyrirtæki á listann eða um 3% fyrirtækja landsins.
Sjá allt um Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri í sérblaði Viðskiptablaðsins. Í blaðinu er að finna lista yfir þau fyrirtæki, sem standa upp úr á Íslandi og eru þar með öðrum til fyrirmyndar í rekstri.