Mímir býður skráðum nemendum upp á ókeypis stöðumat í íslensku til að tryggja að þeir fari á það námskeið sem hentar þeim best. Þetta tryggir meiri gæði og betri árangur hjá fólki sem vill bæta kunnáttu sína í íslensku. Stöðumatið byggir á Evrópska tungumálarammanum og er sambærilegt prófum sem notuð eru víða í Evrópu. Það samanstendur af tveimur þáttum: annars vegar skriflegu mati í gegnum rafræna matið Eurotest og hins vegar munnlegu mati sem er viðtal á netinu við verkefnastjóra hjá Mími. Skriflega matið felur í sér sjálfsmat ásamt prófi í lestri, hlustun, orðaforða og málfræði og í munnlega matinu er metin framburður og færni í að tjá sig á íslensku.
Stöðumatið er að fullu ókeypis fyrir nemendur sem hafa skráð sig á íslenskunámskeið hjá Mími. Að lokinni skráningu geta nemendur pantað stöðumat með því að senda tölvupóst á vanessa@mimir.is. Eftir matið eru nemendur leiddir áfram á það námskeið sem hentar þeirra færni best og þannig að tryggt að hver og einn byrji á réttum stað.


