Kæru nemendur og kennarar

Í ljósi fjölgunar Covid smita undanfarna daga voru hertari innanlandsaðgerðir kynntar síðastliðinn föstudag. Í þeim felst meðal annars að grímuskylda hefur verið tekin upp að nýju þar sem ekki er hægt að viðhafa 1 m fjarlægðarreglu.

Eftirfarandi sóttvarnarreglur gilda í húsnæði Mímis:

  • Grímuskylda er í öllum sameiginlegum rýmum þar sem ekki er hægt að við hana 1 m fjarlægðarreglu.
  • Grímuskylda er inni í kennslustofum á meðan ekki er setið við borð.
  • Viðhalda skal stífum persónubundnum sóttvörnum á meðan dvalið er í húsnæði Mímis.
  • Ef þú ert með kvefeinkenni eða Covid-lík einkenni þá skaltu ekki mæta í húsnæði Mímis.
  • Sótthreinsivökvi og sótthreinsiklútar eru aðgengilegir í húsnæði Mímis.

Mikilvægt er því að fylgjast vel með tilkynningum/upplýsingum sem birtast á upplýsingasíðu Mímis um Covid–19 (https://www.mimir.is/is/covid-19 ) og sendar eru út í gegnum Innu.