Í byrjun febrúar hófu ellefu nemendur nám í umönnunarsmiðju hjá Mími-símenntun. Umönnunarsmiðjan er sérstaklega hönnuð fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á að starfa við umönnun en þurfa sterkari íslenskukunnáttu til að geta sinnt starfinu af öryggi og fagmennsku.
Í smiðjunni er nú unnið með endurbætta útgáfu kennsluefnis úr alþjóðlega verkefninu BRICK. Efnið var prófað fyrir áramót og hefur verið þróað áfram með hliðsjón af reynslu og endurgjöf nemenda og kennara. Kennsluefnið er á stigi 3 í íslensku (A2.1) og samþættar starfstengt nám í íslensku við raunverulegar aðstæður á vinnustöðum. Nemendur vinna með orðaforða, samskipti og verkefni sem tengjast öryggi í starfi, stafrænum lausnum í heilbrigðisþjónustu og sjálfbærum starfsháttum. Tungumálið verður þannig virkt verkfæri sem styrkir bæði faglega hæfni og sjálfstraust.
Stefnumótandi evrópskt samstarf
BRICK er hluti af Erasmus+ Policy Experimentation, einum stærsta og metnaðarfyllsta verkefnaflokki innan Erasmus+. Slík verkefni eru eingöngu opin ríkisstofnunum, ráðuneytum og stærri fræðslu- og opinberum aðilum og miða að því að prófa nýjar stefnumótandi aðferðir á landsvísu í samstarfi stjórnvalda, fyrirtækja og fræðslustofnana.
Verkefnið byggir á víðtæku evrópsku samstarfi þar sem 16 samstarfsaðilar frá Ítalíu, Frakklandi og Íslandi koma að þróun og innleiðingu nýrrar nálgunar í tungumálaþjálfun á vinnustöðum. Mímir er fulltrúi Íslands og einn af samstarfsaðilum verkefnisins, Vinnumálastofnun kemur að verkefninu sem innlendur samstarfsaðili.
Markmið BRICK er að þróa og festa í sessi nýtt evrópskt líkan fyrir tungumálaþjálfun á vinnustöðum, með áherslu á gæði, öryggi, stafræna og græna færni. Unnið er þvert á lönd og atvinnugreinar með ríkri áherslu á gæðamat, eftirlit, útbreiðslu og langtímaáhrif.
Íslenskan sem lykill að þátttöku
Íslenskunámshluti BRICK felur í sér að þróa starfstengda íslenskukennslu sem tengir tungumálanám við aukið öryggi, gæði í starfi og stafræna og græna færni á vinnustöðum á markvissan hátt.
Fyrir fólk af erlendum uppruna er það, að kunna og nota íslensku, einn af mikilvægum þáttum í virkri þátttöku á vinnumarkaði og í samfélaginu. Þegar íslenska er kennd í tengslum við ákveðin störf, til dæmis í umönnun og heilbrigðisþjónustu, aukast gæði, öryggi og fagmennska í slíkum störfum. Starfsfólk sem skilur og getur tjáð sig á íslensku er öruggari í störfum sínum og tekur virkari þátt í starfsemi vinnustaða sem þannig eykur starfsánægju allra.
Með þessari þróunarvinnu er verið að byggja brú milli tungumálanáms og atvinnulífs með skýra framtíðarsýn fyrir faglegt, öruggt og sjálfbært vinnuumhverfi.





