Íslenska á vinnustað

Mímir hefur áralanga reynslu af íslenskukennslu fyrir erlent starfsfólk og hafa námskeið verið haldin í samstarfi við fyrirtæki með góðum árangri síðan árið 2003. Námskeiðin byggja á viðurkenndum kennsluaðferðum sem hvetja til aukinna samskipta á íslensku. Mímir hefur hlotið viðurkenningu á fræðslustarfseminni frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og hefur vottunina EQM+ (European Quality Mark) sem viðurkenndur fræðsluaðili.  

Ávinningur fyrirtækja 

Ávinningur fyrirtækja af því að efla íslenskukunnáttu meðal starfsfólks er margvíslegur. Þar ber að nefna aukna starfsánægju og samskipti innbyrðis, minni starfsmannaveltu og upplýstara starfsfólk, sem aftur hefur jákvæð áhrif á lífsgæði erlendra starfsmanna. Þá felst ávinningur í því að bæta almenn samskipti starfsfólks og viðskiptavina, sem og að auka skilvirkni í samskiptum erlendra starfsmanna við yfirmenn og stjórnendur.  

Starfstengt nám 

Námskeiðin eru ætíð sniðin að þörfum vinnumarkaðarins. Sérfræðingur frá Mími greinir þarfir vinnustaðarins fyrir íslenskukennslu og skilgreinir markmið og áherslur í náminu í samvinnu við vinnustaðinn. Mat á stöðu starfsmanna í íslensku fer fram í upphafi og við lok námskeiðs. Þá hefur starfsfólk aðgang að náms- og starfsráðgjöf meðan á náminu stendur. Í lok námskeiðs fer fram rafrænt mat á námskeiðinu og niðurstöðum skilað til vinnustaðarins ásamt viðurkenningum sem staðfesta þátttöku. Námskeiðin geta farið fram á vinnustaðnum eða í húsnæði Mímis.  

Þjónusta við fyrirtæki 

Mímir býður fyrirækjum ýmiss konar þjónustu við að efla starfsfólk sitt í íslensku og gera íslensku að leiðandi tungumáli á vinnustaðnum. Fyrirtækjum býðst að gera samstarfssamninga við Mími sem miðast við ákveðið tímabil og þjónustu og/eða kaupa stök námskeið. Mímir sækir um niðurgreiðslu til mennta- og menningarmálaráðuneytisins vegna íslenskunámskeiða. Þá geta fyrirtæki leitað í starfsmennasjóði um styrki til námsins.

Íslenskunám í samstarfi við fyrirtæki - Myndbönd

 

Íslenskunám í samstarfi við Brim

 

Íslenskunám í samstarfi við Landspítalann

FRÉTT // Íslenskukennsla í boði Landspítala fyrir erlenda starfsmenn - Birt með leyfi Landspítalans

 

 

 

 

 

Nánari upplýsingar um ráðgjöf og þjónustu við fyrirtæki veita:

 

 

Helga Rúna Þorsteinsdóttir

Sími: 580-1800. Netfang: fyrirtaeki@mimir.is

Kristín Erla Þráinsdóttir

Sími: 580-1800. Netfang: fyrirtaeki@mimir.is

 

 

 

 

 

 
Var efnið á síðunni hjálplegt?