Um námskeiðið

Stökkpallur er sívinsæl námsbraut fyrir alla sem vilja byggja upp eigin samskiptafærni og þjálfa sig í að setja sér markmið og fylgja þeim eftir. Lögð er áhersla á að efla fjármálalæsi, skipulögð vinnubrögð og styðja þátttakendur í að vera meðvitaðri um eigin styrkleika. Námið er ætlað þeim sem hætt hafa í námi eða á vinnumarkaði af ýmsum orsökum og vilja styrkja sig á ný. Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði og kennt samkvæmt námskrá vottaðari af Menntamálastofnun. 

 

Inntökuskilyrði

a. að vera 18 ára eða eldri og hafa ekki lokið framhaldsskólaprófi

eða

b. að hafa undirritað námssamning hjá Vinnumálastofnun

Námsmat

Námsmat byggir á mætingu og virkni í tímum. Mætingarskylda er á námskeiðið. 

Kennslustaður

Höfðabakki 9, 110 Reykjavík

Styrkir/niðurgreiðslur

Fræðslusjóðir stéttarfélaganna niðurgreiða námskeiðið. Nauðsynlegt er að greiða fyrir námskeiðið og framvísa svo frumriti af reikningi til viðkomandi stéttarfélags til að fá endurgreiðsluna. Atvinnuleitendur geta sótt um allt að 75% niðurgreiðslu til Vinnumálastofnunar. Námsstyrkir | Vinnumálastofnun (vinnumalastofnun.is)

Stundatafla/kennslufyrirkomulag

Kennt er frá 08:30-12:50 alla virka daga. 

Verð

Fullt verð 68.000 kr. Vinnumálastofnun greiðir allt að 75% af námsgjaldi. Námsstyrkir | Vinnumálastofnun (vinnumalastofnun.is)

 

Flokkar: Námsbrautir