Um námskeiðið

Námið hentar vel þeim sem ekki hafa að fullu lokið grunnskólaprófi eða ekki verið lengi í námi. Námið er ætlað fólki sem vill byggja upp haldgóða undirstöðu í kjarnagreinunum og undirbúa sig skv. aðalnámskrá framhaldsskóla; íslensku, stærðfræði og erlendum tungumálum með áherslu á ensku og/eða dönsku. Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði og kennt samkvæmt námskrá vottaðri af Menntamálastofnun. 

Staðnám, fjarnám eða blandað

Staðnám. Kennt er alla virka daga klukkan 8.40 - 11.55 í 12 vikur.

Námsgreinar

  • Íslenska 
  • Enska 
  • Stærðfræði  
  • Tölvu- og upplýsingatækni  
  • Námstækni, sjálfstyrking og samskipti

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Kannaðu málið!

Inntökuskilyrði

a. að vera 18 ára eða eldri og hafa ekki lokið framhaldsskólaprófi

eða

b. að hafa undirritað námssamning hjá Vinnumálastofnun

Námsmat

Námsmat byggir á mætingu og virkni í tímum. Mætingarskylda er á námskeiðið. Ekkert lokapróf. 

Kennslustaður

Höfðabakki 9, 110 Reykjavík

Styrkir/niðurgreiðslur

Fræðslusjóðir stéttarfélaganna niðurgreiða námskeiðið. Nauðsynlegt er að greiða fyrir námskeiðið og framvísa svo frumriti af reikningi til viðkomandi stéttarfélags til að fá endurgreiðsluna. Atvinnuleitendur geta sótt um allt að 75% niðurgreiðslu til Vinnumálastofnunar. Námsstyrkir | Vinnumálastofnun (vinnumalastofnun.is)

Stundatafla/kennslufyrirkomulag

Mánudaga til föstudaga 8:40-11:55

Verð

Fullt verð 65.600 kr. Vinnumálastofnun greiðir allt að 75% af námsgjaldi. Námsstyrkir | Vinnumálastofnun (vinnumalastofnun.is)

 

Flokkar: Námsbrautir