Næstu hópar:
Pólska: 3. -17. maí 2021, kl. 8.20-11.50 (Með fyrirvara um breytingar)
Íslenska: 3. - 17. maí 2021, kl. 12.50-16.10 (Með fyrirvara um breytingar)
Námið er 60 klukkustundir.
Í náminu er fjallað um samskipti og þjónustu, notkun fjölbreyttra aðferða við að miðla upplýsingum, svo sem í gegnum samskiptamiðla og tölvupóst. Einnig er fjallað um orðspor fyrirtækja og traust viðskiptavina. Náminu er ætlað að styrkja starfshæfni og sjálfstraust þátttakenda ásamt því að koma til móts við þarfir atvinnulífsins.
Námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
Námsmaður skal geta hagnýtt sér þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Móttaka og miðlun er kennt samkvæmt námskrá sem gefin var út af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og vottuð af Menntamálastofnun. Námið er á 2. þrepi hæfniramma um íslenska menntun og mögulegt er að meta til 3 framhaldsskólaeininga.
Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði.
Nánari upplýsingar
Rut Magnúsdóttir. Sími 580-1800. Netfang: rut@mimir.is
Inntökuskilyrði
a. að vera 18 ára eða eldri og hafa ekki lokið framhaldsskólaprófi
eða
b. að hafa undirritað námssamning hjá Vinnumálastofnun
Námsmat
Námsmat byggir á mætingu og virkni í tímum. Mætingarskylda er á námskeiðið.
Kennslustaður
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Styrkir/niðurgreiðslur
Fræðslusjóðir stéttarfélaganna niðurgreiða námskeiðið. Nauðsynlegt er að greiða fyrir námskeiðið og framvísa svo frumriti af reikningi til viðkomandi stéttarfélags til að fá endurgreiðsluna. Atvinnuleitendur geta sótt um allt að 75% niðurgreiðslu til Vinnumálastofnunar. Námsstyrkir | Vinnumálastofnun (vinnumalastofnun.is)
Stundatafla/kennslufyrirkomulag
Pólska: 3. -17. maí 2021, kl. 8.20-11.50 (Með fyrirvara um breytingar)
Íslenska: 3. - 17. maí 2021, kl. 12.50-16.10 (Með fyrirvara um breytingar)
Verð
Fullt verð 15.000 kr. Vinnumálastofnun greiðir allt að 75% af námsgjaldi. Námsstyrkir | Vinnumálastofnun (vinnumalastofnun.is)
Skráning á póstlista
Upplýsingar um ný námskeið, tilboð og síðustu sætin á námskeið sem eru að hefjast.