Hefst 7. janúar 2021 og útskrift haust 2021.
Pantaðu viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa áður en þú skráir þig í námið til að kanna þína möguleika.
Námið er fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri. Þeir sem ljúka námi í Menntastoðum með tilskyldum árangri geta sótt um í undirbúningsdeildir háskólanna, Keili, HR og Bifröst.
Menntastoðir eru vinsæl námsbraut sem hefur veitt fjölda fólks ný tækifæri í námi og eru nemendur mjög vel undirbúnir fyrir áframhaldandi nám.
Smellið á námsgreinar til að fá nánari upplýsingar.
Menntastoðir eru kenndar samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Mennta – og menningarmálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til framhaldsskólaeininga. Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði.
Nánari upplýsingar
Alma Guðrún Frímannsdóttir. Sími 580-1800. Netfang: alma@mimir.is
Inntökuskilyrði
Allir sem eru 18 ára eða eldri og hafa ekki lokið framhaldsskólaprófi geta sótt um Menntastoðir
Námsmat
Unnið er samkvæmt hugmyndum um leiðsagnarmat þar sem námsmat er stöðugt í gangi. Námsárangur og námsframvinda nemenda er metin jafnt og þétt alla önnina með fjölbreyttum verkefnum og stuttum könnunum.
Kennslustaður
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Styrkir/niðurgreiðslur
Fræðslusjóðir stéttarfélaganna niðurgreiða námið allt að 90%. Nauðsynlegt er að greiða fyrir námið fyrst og framvísa svo frumriti af reikningi til viðkomandi stéttarfélags til að fá endurgreiðsluna.
Stundatafla/kennslufyrirkomulag
Kennt er tvö kvöld í viku frá 16:20-20:40 og annan hvern laugardag kl. 9:00-14:40. Nemendur ljúka námi á tveimur önnum.
Verð
165.000 kr.*
*Birt með fyrirvara um breytingar.
Spurt og svarað
Hvenær hefst námið?
Nám í Menntastoðum fer af stað á hverri önn svo lengi sem skráning sé nægjanleg. Á haustin byrja hópar í ágúst en á vorönn í janúar.
Hvenær útskrifast nemendur?
Formleg útskrift er tvisvar á ári, í desember og janúar.
Ef ég klára Menntastoðir, kemst ég þá í háskóla?
Þeir sem útskrifast úr Menntastoðum geta sótt um nám í frumgreinadeildir háskólanna.
Skráning á póstlista
Upplýsingar um ný námskeið, tilboð og síðustu sætin á námskeið sem eru að hefjast.