Fagnámskeiðin eru haldin í samstarfi Mímis-símenntunar og Eflingar. Námið er ætlað einstaklingum sem eru eldri en 20 ára, hafa stutta skólagöngu og vinna við uppeldi og umönnun barna á leikskólum.
Á fagnámskeiðunum er bæði lögð áhersla á námsþætti sem styrkja persónulega og almenna færni t.d. sjálfstyrkingu og samskipti, námstækni, færnimappa og tölvur og svo námsþætti eins og uppeldi leikskólabarna, þroski og þróun leikskólabarna, listastarf með börnum, námsskrá leikskóla, fjölmenningarlegan leikskóla og fleiri.
Kennt er samkvæmt vottaðri námsskrá Menntamálastofnunar.
ATH. Skráning fer fram hjá Eflingu, efling@efling.is eða í síma 510-7500
Fyrir aðra en félagsmenn Eflingar: sendið póst á mimir@mimir.is
Inntökuskilyrði
Námið er ætlað þeim sem vinna á leikskólum, eru eldri en 20 ára og hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi. Heimilt er þó í undantekningartilfellum að taka inn í námið starfsmenn sem eru á aldrinum 18-20 ára ef þeir eru í fullu starfi.
Námsmat
Námsmat byggir á mætingu og virkni í tímum. Nauðsynlegt er að ná 80% mætingu til að teljast hafa lokið námsbrautinni.
Kennslustaður
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Styrkir/niðurgreiðslur
Efling greiðir námið fyrir sína félagsmenn. Þeir sem er ekki í Eflingu greiða 25.000 kr.
Stundatafla/kennslufyrirkomulag
Kennt er þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl 8:30-11:45
Verð
Efling greiðir námið fyrir sína félagsmenn. Aðrir greiða 25.500 kr.
Spurt og svarað
Eru próf? Nei það eru ekki próf en það er 80 % mætingarskylda.
Hvenær hefst námið? Fagnámskeið I fer af stað á haustönn svo lengi sem skráning er nægjanleg.
Skráning á póstlista
Upplýsingar um ný námskeið, tilboð og síðustu sætin á námskeið sem eru að hefjast.