Námskeið fyrir dyraverði er unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Námskeiðið er ætlað starfandi dyravörðum og/eða þeim sem hyggjast starfa við dyravörslu. Þá hentar námskeiðið einnig starfsfólki hótela og veitingahúsa sem t.d. vinna næturvaktir. Námskeiðið er starfstengt og er ætlað að efla þátttakendur í starfi. Að námskeiði loknu fá þátttakendur dyravarðaskírteini sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gefur út en skírteinið gildir í þrjú ár.
Kennt er mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 17:00
Sótt er um dyravarðaskírteini á rafrænu formi eða á lögreglustöðinni á Krókhálsi 5b, 2.hæð. Hægt er að sækja um dyravarðaskírteini til þriggja ára áður en námskeið hefst og verður það þá afhent við námskeiðslok.
Til að ljúka námskeiðinu þarf að ná minnst 80% mætingu.
Til viðbótar við námskeiðið þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði til að geta sótt um skírteini:
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
.
Skráning á póstlista
Upplýsingar um ný námskeið, tilboð og síðustu sætin á námskeið sem eru að hefjast.