Styrkir til náms
Stéttarfélög styðja félagsmenn sína með ýmsu móti til náms og er nemendum bent á að kynna sér styrki hjá sínu stéttarfélagi.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins niðurgreiðir nám í ýmsum námsleiðum, sem kennt er samkvæmt námsskrá FA. Til að fá nánari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við verkefnastjóra námsleiða hjá Mimi-símenntun.
Þá styður Vinnumálastofnun atvinnulausa til náms með ýmsum námskeiðum sem haldin eru hjá Mími-símenntun.
