Algengar spurningar
Er hægt að skipta greiðslum vegna námskeiðsgjalds á námsleið (ekki frístunda- og tungumálanámskeiði)?
Við vísum á verkefnastjóra viðkomandi námsleiðar, hægt er að hafa samband í síma 580 1800.
Er hægt að sjá bækling yfir öll frístundanámskeið Mímis?
Hægt er að sjá bækling yfir námskeiðin okkar með því að smella á merkið fyrir frístundanámskeið neðst til hægri á forsíðunni. Einnig er hægt að nálgast bækling á skrifstofu Mímis í Ofanleiti 2, 3. hæð.
