Leikskólaliðabrú
Vinnur þú á leikskóla? Viltu auka færni þína?
Leikskólaliðabrú er ætluð þeim sem starfa á leikskólum. Nemendur þurfa vera orðnir 22ja ára, hafa lokið 230 kennslustunda starfstengdum námskeiðum eða sambærilegu námi og hafa að baki að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu af störfum við leik- eða grunnskóla við uppeldi, umönnun og menntun barna.
Nemendur útskrifast sem leikskólaliðar.
Kennslufyrirkomulag
- Leikskólaliðabrú er 30 eininga nám á framhaldsskólastigi.
- Námið er 4 annir. Kenndar eru 6-9 einingar á hverri önn.
- Kennt er einu sinni í viku, frá 17:00- 20:45, 5 kennslustundir í senn og 2-3 laugardaga á önn, frá 8.30 – 16:30, 10 kennslustundir í senn
Mat á fyrra námi auk starfsreynslu byggir á reglum sem Mennta- og menningarmálaráðuneytið gefur út. Starfsreynsla og starfstengd námskeið eru metin til styttingar þannig að leikskólabrúin er 30 einingar en leikskólaliðanám 59 einingar. Þeir sem ekki uppfylla ofangreind skilyrði geta stundað leikskólaliðanám við framhaldsskóla.
Áfangaskipting
| 1.önn | ||
|---|---|---|
| Samskipti og samstarf | SAS113 | 3 einingar |
| Siðfræði | SIÐ102 | 2 einingar |
| Almenn uppeldis- og menntunarfræði | UPP103 | 3 einingar |
| 2. önn | ||
|---|---|---|
| Listir og skapandi starf | LSK 103 | 3 einingar |
| Þroskasálfræði | SÁL203 | 3 einingar |
| Uppeldismál á Íslandi | UPP203 | 3 einingar |
| 3. önn | ||
|---|---|---|
| Leikur sem náms og þroskaleið | LEN103 | 3 einingar |
| Skyndihjálp | SKY101 | 1 eining |
| Þroski og hreyfing | ÞRO103 | 3 einingar |
| 4. önn | ||
| Fötlun | FTL103 | 3 einingar |
| Mál og menningarheimur barna og ungmenna | ÍSL633 | 3 einingar |
*Áfangaskipting er til hliðsjónar og getur breyst milli ára
Nánari upplýsingar
Ingibjörg Stefánsdóttir
Sími 580 1814
Netfang: ingibjorg@mimir.is
