Félagsliðabrú

Vinnur þú við umönnun aldraðra, sjúkra, fatlaðra og/eða í heimaþjónustu? Viltu auka færni þína?

 

Nám í félagsliðabrú tekur mið af því að nemendur séu í starfi og sæki námið í samráði við vinnustað sinn. Nemendur þurfa vera orðnir 22 ára, hafa lokið 230 kennslustunda starfstengdum námskeiðum og hafa að baki að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu.

Nemendur útskrifast sem félagsliðar.

Kennslufyrirkomulag

  • Félagsliðabrú er 32 eininga nám á framhaldsskólastigi.
  • Námið er samtals 32 einingar sem eru kenndar á fjórum önnum. Kenndar eru sjö til níu einingar á hverri önn. Kjarninn er 25 einingar og valgreinar eru 7 einingar.
  • Kennt er einu sinni í viku, frá kl. 16:30–20:15 alls 5 kennslustundir í senn og 2-3 laugadaga, frá kl. 8.30–16:30 alls 10 kennslustundir í senn.

Mat á fyrra námi auk starfsreynslu byggir á reglum sem mennta- og menningarmálaráðuneytið gefur út. Starfsreynsla er metin til styttingar sem er 78 einingar. Þeir sem ekki uppfylla ofangreind skilyrði geta stundað nám við Borgaholtsskóla.


Áfangaskipting
:

1.önn     
Heilbrigðisfræði HBF 103 3 einingar
Félagsfræði FÉL 123 3 einingar
Félagsleg virkni FÉV 102 2 einingar
2. önn
Aðstoð og umönnun ASU 104 4 einingar
Sálfræði SÁL 123 3 einingar
3. önn                  
Fjölskylda og félagsleg þjónusta FJF 103 3 einingar 
Lyfjafræði LYF 113 3 einingar
Næringarfræði NÆR 103 3 einingar
4.önn
Skyndihjálp SKY 101 1 eining
4.önn - Valgreinar
Samfélagsþjónusta aldraðra SFA 102 2 einingar
Öldrunarferli ÖLD 105 5 einingar

eða

Fötlun FTL 103 3 einingar
Fötlun og samfélag FOS 104 4 einingar

 
Nánari upplýsingar
Irma Matchavarianai
Sími 580 1815
Netfang: irma@mimir.is

Senda



Þetta vefsvæði byggir á Eplica