Tölvu- og upplýsingatækni
Vilt þú auka færni þína til að takast á við breytingar í starfi og auka þekkingu þína í upplýsingatækni og tölvum?
Þá er námskeiðið Sterkari starfsmaður fyrir þig. Námið er 150 kennslustundir að lengd og ætlað þeim sem eru 20 ára og eldri og með stutta skólagöngu að baki.
Markmið
- Að efla sjálfstraust og lífsleikni
- Að auka færni í samskiptum við aðra
- Að auka færni til að vinna verkefni sjálfstætt, skipuleggja og afla upplýsinga með ýmsu móti og miðla þeim munnlega og skriflega til annarra
- Að auka færni til að leita upplýsinga með notkun vafra, leitarvéla og Netsins
- Að auka færni til að vinna í ritvinnslu, töflureikni og að vinna með myndir í tölvu
Námsgreinar
- Sjálfsstyrking og samskipti
- Skipulag, frumkvæði og efling í starfi
- Vinnustaðamenning og liðsheild
- Ritvinnsla
- Töflureiknir
- Vafri og netið
- Myndvinnsla
- Rafræn samskipti
Engin lokapróf eru tekin en námsmat fer fram með verkefnavinnu, æfingum og símati. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til framhaldsskólaeininga.
Kennslufyrirkomulag
Kennt er fimm virka daga í viku á morgnana, fimm kennslustundir í hvert skipti.
Kennt er eftir námsskrá frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Verð
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins niðurgreiðir kennslu svo hlutur nemenda í námsgjöldum er 26.000 krónur.
Hægt er að sækja um styrk vegna námsgjalds til fræðslusjóða stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar
Rósa Steinunn Jónsdóttir
Sími 580-1800
rosa@mimir.is
