Almennar bóklegar greinar

Byrjaðir þú í framhaldsskóla en kláraðir ekki? Viltu halda áfram?


Þá er nám í almennum bóklegum greinum fyrir þig. Námið er  300 kennslustundir og ætlað einstaklingum 23 ára og eldri. Lögð er áhersla á fjölbreyttar kennsluaðferðir og einstaklingsmiðað nám.

Markmið

  • Að læra íslensku, ensku, dönsku og stærðfræði á framhaldsskólastigi
  • Að auka sjálfstraust í námi
  • Að þjálfa sjálfstæð vinnubrögð og samvinnu
  • Að þjálfa tölvunotkun til upplýsingaleitar og verkefnavinnu
  • Að styrkja stöðu á vinnumarkaði

 

Námsgreinar

  • Íslenska
  • Stærðfræði
  • Enska
  • Danska
  • Sjálfsstyrking
  • Námstækni

 

Kennslufyrirkomulag
Kennt er á dagtíma alla virka daga, fimm kennslustundir í senn. Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Mennta– og menningamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til eininga á framhaldsskólastigi. 

Verð
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins niðurgreiðir námið svo hlutur nemenda í námsgjöldum er 53.000 krónur. Hægt er að sækja um styrk vegna námsgjalds til fræðslusjóða stéttarfélaga.

 
Nánari upplýsingar
Ingibjörg Stefánsdóttir
Sími 580 1800
ingibjorg@mimir.is

Senda



Þetta vefsvæði byggir á Eplica