Menntastoðir

Langar þig í háskóla en hefur ekki lokið stúdentsprófi?

 

Menntastoðir eru krefjandi nám fyrir einstaklinga, 23 ára og eldri. Nemendur sem ljúka námi í Menntastoðum komast í undirbúningsdeildir háskólanna. Nám í Menntastoðum er unnið í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Keili.


Markmið

  • Að komast í undirbúningsdeildir háskóla
  • Að þjálfa markviss og skipulögð vinnubrögð í námi
  • Að byggja upp jákvætt viðhorf gagnvart áframhaldandi námi
  • Að styrkja stöðu á vinnumarkaði


Námsgreinar

  • Íslenska
  • Stærðfræði
  • Enska
  • Danska
  • Námstækni
  • Tölvu –og upplýsingatækni
  • Bókfærsla

 

Kennslufyrirkomulag
Í boði er staðnám og dreifnám. Staðnámið tekur um 6 mánuði og kennt er alla virka daga. Dreifnámið tekur um 10 mánuði og kennt er einn virkan dag í viku og annan hvern laugardag.  
Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Mennta– og menningamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til eininga á framhaldsskólastigi. 

Verð
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins niðurgreiðir kennslu í Menntastoðum svo hlutur nemenda í námsgjöldum er 116.000 krónur. Hægt er að sækja um styrk vegna námsgjalds til fræðslusjóða stéttarfélaga.

 

Nánari upplýsingar
Guðjón Jónsson
Sími 580 1800
gudjonhs@mimir.is

Anney Þ. Þorvaldsdóttir
Sími 580 1800
anney@mimir.is

 

Senda



Þetta vefsvæði byggir á Eplica