Jarðlagnatækni
Viltu læra viðgerðir á rafstrengjum, vatns- og hitalögnum?
Námið er ætlað verkamönnum, flokksstjórum, verkstjórum og verktökum sem vinna við nýlagnir, endurbætur, viðhald og viðgerðir rafstrengja, vatnslagna, hitalagna, fjarskiptalagna og fráveitna í jörð.
Markmið
- Að efla skilning á tæknilegum atriðum og unhverfissjónarmiðum við jarðlagnavinnu
- Að efla skilning á öryggismálum
- Að auka skipulags- og samskiptahæfni
Kennslufyrirkomulag
Jarðlagnatækni er 300 kennslustunda nám.
Kennt er í þremur tveggja vikna lotum með tveggja vikna millibili. Oftast hefst námið snemma í janúar, þannig að ein lota er kennd í janúar, önnur í febrúar og sú þriðja í mars. Kennt er í 10 kennslustundir á dag alla virka daga.
Verð
Fræðslumiðstöð Atvinnulífsins niðurgreiðir námið, þannig að hlutur nemenda er 53.000 krónur. Hægt er að fá styrk frá verkalýðsfélögum eða sjóðum til að niðurgreiða þessa uppæð.
Námsgreinar
| Námsgrein |
Kennslu- |
|---|---|
| Kynning námskeiðs | 1 |
| Efnisfræði | 10 |
| Fornminjar | 2 |
| GPS tækni | 2 |
| Íslenska | 12 |
| Jarðlagnir | 100 |
| Jarðvegsfræði | 15 |
| Lokaverkefni | 5 |
| Merking vinnusvæða | 5 |
| Námstækni | 5 |
| Rafmagnsfræði | 10 |
| Samskipti og samstarf á vinnustað | 10 |
| Skyndihjálp | 16 |
| Stærðfræði | 21 |
| Tækniteiknun og innmælingar | 11 |
| Tölvur og upplýsingatækni | 30 |
| Vatnsvernd og HSSP gæðastjórnun | 8 |
| Veitufyrirtækin | 3 |
| Verkstjórnun | 5 |
| Vélfræði | 5 |
| Vinnumarkaðurinn | 9 |
| Vinnuvistfræði | 5 |
| Öryggismál | 10 |
Nánari upplýsingar
Guðjón Jónsson
Sími 580 1821
gudjonhs@mimir.is
