Skóli fyrir innflytjendur

Vilt þú læra íslensku og efla stöðu þína á vinnumarkaði?

 

Landnemaskólinn er sérstaklega sniðinn að þörfum innflytjenda á Íslandi sem langar að styrkja stöðu sína í íslensku samfélagi. Námið er 120 kennslustundir.

Forkröfur
Skólinn er ætlaður fólki sem hefur lokið  að minnsta kosti 180 stundum í íslensku eða hefur sambærilega kunnáttu.


Markmið

  • Að auka færni í talaðri og ritaðri íslensku
  • Að auka færni til að taka þátt í íslensku samfélagi
  • Að auka færni í samskiptum og samvinnu
  • Að kynnast ólíkum stofnunum og opinberri þjónustu 
  • Að kynnast þáttum í sögu og menningu Íslendinga
  • Að þjálfast í tölvuvinnslu
  • Að gera góða færnimöppu og ferilskrá

 

Námsgreinar

  • Íslenska
  • Samfélagsfræðsla
  • Sjálfstyrking
  • Tölvuvinnsla
  • Færnimappa

 

Mikil samheldni myndast gjarnan í Landnemaskólanum meðal nemenda og er unnið sérstaklega að því að efla sjálfstraust fólks í að tala og skrifa íslensku. Talæfingar, frásagnir nemenda, ritun og grunnreglur í málfræði eru meðal viðfangsefna í íslensku. Vettvangsferðir á söfn og opinberar stofnanir, Íslandssaga, réttindi og skyldur einstaklinga er meðal viðfangsefna í samfélagsfræðslu. Áhersla er lögð á gerð ferilskráar og færnimöppu með námsráðgjafa. Leikhúsferð er ávallt stór þáttur  í Landnemaskólanum. Þar er starfsemi leikhússins kynnt og unnið með verkið fyrir og eftir sýningu.

Námsgreinarnar eru samtvinnaðar í lokin við  gerð Landnemablaðsins sem er lokaverkefni Landnemaskólans.  Allir nemendurnir vinna saman að gerð blaðsins.

Verð
Verð námskeiðsins er 21.000 kr. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins niðurgreiðir nemendagjöld í Landnemaskólanum. Hægt er að sækja um niðurgreiðslu á nemendagjaldi í fræðslusjóð stéttarfélags. Kennt er eftir námsskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Nánari upplýsingar
Selma Kristjánsdóttir
Sími: 580 1828
selma@mimir.is

Senda



Þetta vefsvæði byggir á Eplica